Fótspor

í auðninni.

Bíllinn er til sölu

þriðjudagur, 19. ágúst 2008

Ég hef ákveðið að setja bílinn minn á sölu þrátt fyrir það að ég hafi engan áhuga á að selja hann. Ég einfaldlega verð að gera það þar sem ég er að reyna að koma mér í nýtt húsnæði og við það aukast útgjöldin. Þá er líklega skynsamlegra að eiga skuldlausan bíl. Ef þið hafið áhuga á bílnum getið þið skoðað hann á Litlu bílasölunni. Sjá hér. Stærri myndir má sjá hér.

Bíllinn

Skrifað í: Daglegt líf | 2 Athugasemdir »

Játning

fimmtudagur, 14. ágúst 2008

Grumpy old menÉg verð því miður að játa það að ég mun ekki taka þátt í 10 km. maraþoninu á laugardaginn þar næsta eins og ég var búinn að plana.

Ástæðan er í raun tvíþætt. Í júní fékk ég alveg heiftarlega í hægra hnéð, líklega vegna álags, og hef ekki alveg náð mér að fullu eftir það. Hin ástæðan er síðan sú að eftir heilmikla smíða-, pípara-, málara- og samsetningavinnu er ég enn verri í hnjánum. Ég er það slæmur að ég á í erfiðleikum með að fara niður á hnén án þess að finna til. Í morgun vaknaði ég meira að segja með verki um allan líkama.  Reyndar gæti ég líka talið upp þriðju ástæðuna, bólgu í hægri öxl, en það er reyndar eitthvað sem á ekki að koma í veg fyrir að maður hlaupi.

Þar hafið þið það, ég er aumingi og gamalmenni … he, he, he.  c”)

Skrifað í: Daglegt líf | 2 Athugasemdir »

Andri Snær Magnason

þriðjudagur, 12. ágúst 2008

Hér er maður með viti.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Skrifað í: Almennt | 3 Athugasemdir »

Prinsessan og æfingar

þriðjudagur, 27. maí 2008

Prinsessan er 11 vikna í dag og því alveg við hæfi að skella inn einni mynd sem ég tók í gær. Ég er alveg ferlega ánægður með myndirnar sem ég tók. Prinsessan var alveg ótrúlega dugleg að halda haus á teppinu sínu og horfði meira að segja beint í linsuna hjá mér. Litla er farin að babbla á fullu og glottir út í eitt, alveg ferlega skemmtilegt. Annars gengur allt alveg rosalega vel með hana.

Af æfingum fyrir maraþon er það að frétta að ég er rétt að byrja að hlaupa aftur eftir all svakalegt kvef. Var eins og aumingi í rúma viku með hor í nös og gat ekkert gert. Ég var hins vegar að átta mig á því að það er ekki nema rúmur 2 1/2 mánuður í hlaupið og því er eins gott að fara að taka æfingarnar með trukki. Fyrir kvefið var ég að taka 10 km. á léttu skokki á 60 min. Ég þarf því að skera þennan tíma niður um 15 min. Verð að segja að ég er farinn að kvíða örlítið fyrir þetta. Meira um þetta síðar.

Smellið á myndina til að opna hana í nýjum glugga.

Litla að halda haus

Skrifað í: Almennt | 4 Athugasemdir »

Sushi

þriðjudagur, 20. maí 2008

Sushi 2Ég ákvað að hlífa heyrninni við þessum fölsku og leiðinlegu tónum sem glymja í sjónvörpum landans þetta kvöldið og henda inn einni færslu á vefinn hjá mér. Ég ætlaði reyndar að skrifa þessa færslu í gær en kom mér einhvern vegin ekki í það.

Síðustu vikur og mánuði hef ég eytt miklum tíma í vangaveltur um japanska matargerð, nánar tiltekið Sushi. Það þarf kannski ekki heldur að koma á óvart að ég hef einnig eytt miklum tíma í að borða Sushi. Í sjálfu sér er ekki langt síðan ég fór fyrst að smakka Sushi en ég held svei mér þá að ég geti talið það tímabil á fingrum annarrar handar, í mánuðum.

Það er hins vegar nokkuð langt síðan mér var fyrst stillt upp fyrir framan eldavélina og ég látinn elda mat ofan í alla fjölskylduna. Allt frá því ég var ca. 16 ára var ég látinn elda kvöldmat ofan í fjölskylduna og það tvisvar í viku. Í dag þakka ég reyndar fyrir þessa reynslu þar sem ég er orðinn nokkuð sleipur við eldavélina, já og allar hinar græjurnar líka. Ég vil einnig meina að þessi æfing hafi orsakað það að mér þykir alveg ferlega gaman að elda góðan mat og nýti hvert tækifæri til þess að “malla” einhvern rétt. Það þarf því ekki neinn að undrast að ég varð fljótt hrifinn af Sushi-inu þegar ég komst með puttana í Sushi grjónin.

Fyrir rúmum tveimur vikum síðan fjárfesti ég síðan í kennslubók í Sushigerð til þess að geta náð betri tökum á hinum og þessum hugtökum sem og áttaði mig á því hvernig er best að standa að Sushigerð. Þetta er nefnilega ekki eins einfalt og maður hefði haldið. Reyndar væri hægt að komast í gegnum Sushigerðina með einhverju skítaföndri en ég held að það verði bara ekki eins gott og ef maður eyðir smá tíma og alúð í matargerðina. Japaninn er nefnilega þekktur fyrir það að gera allt eftir ákveðnum reglum og aðferðum og þeim skal sko fylgt enda liggur einhver ástæða þar að baki.

Þeir sem hafa “eldað” Sushi vita að mesti tíminn fer í að undirbúa hrísgrjónin enda þarf að hreinsa þau þar til öll sterkja er farin af þeim. Í þar síðustu viku hreinsaði ég hrísgrjón í fyrsta skiptið, alveg sjálfur, og komst þá að því hversu mikla þolinmæði þarf í þessa matargerð. Bara það að hreinsa hrísgrjónin tók mig tæpan klukkutíma. Ég held hins vegar að það hafi marg borgað sig þar sem þau litu alveg rosalega vel út eftir að búið var að sjóða og hella ákveðinni edik blöndu saman við þau. Í framhaldi af því þarf maður síðan að eyða nokkrum tíma við það að búa til hina og þessa réttina. Hægt er að búa til rúllur, kodda og margt annað, ætla ekki að fara út í að nefna allar þessar gerðir og nöfnin á þeim.

Við alla þessa matargerð þarf maður helst að vera með hin og þessi áhöld sem eru sérhönnuð fyrir Sushi gerð en það er þó hægt að komast upp með að nota svipuð áhöld sem til eru í eldhússkápunum. Persónulega finnst mér reyndar mun skemmtilegra að eiga áhöld sem þessi þar sem það eykur sjarmann við matargerðina að vera með áhöld sem einhver “grjónapoki” í Japan hannaði (enginn rasismi í þessu grjónapoka orði, ég er bara að reyna að vera fyndinn ;-). Reyndar hef ég ekki notað þessi sérhönnuðu áhöld en hef a.m.k. fundið þau á Amazon.com. Það er því alls ekki ólíklegt að á einhverjum sólríkum degi, þegar ég er í svaka stuði til þess að eyða 2-3 bláum seðlum, að ég panti þessi verkfæri.

Rúsínan í pylsuendanum við svona matargerð er síðan hollustan. Svona matur er svo langt um hollari en sveittur borgari á McDonalds eða djúpsteikt hæna á KFC. Reyndar þarf maður að borga örlítið meira fyrir þennan mat en hey, hvort viltu eyða nokkrum krónum í að fyrirbyggja kransæðastíflu eða eyða fúlgu fjár í lyfja og lækniskostnað vegna hjartaáfalls. Ef þú velur seinni kostinn ætla ég a.m.k. að vona að þú lifir hjartaáfallið af.

Læt nokkrar myndir af Sushi réttum fylgja þessum orðum.

Hvað segið þið annars um þetta? Borðið þið Sushi?

Sushi 6

Sushi 5

Sushi 4

Sushi 3

Sushi 1

Skrifað í: Daglegt líf | 10 Athugasemdir »

Fleiri myndir

mánudagur, 19. maí 2008

Tók smá seríu af skvísunni á laugardaginn. Setti þær inn á krílis-síðuna í gærkvöldi.

Endilega kíkið á þær.

Brosandi

Skrifað í: Daglegt líf | 1 Athugasemd »

Do’s and Don’ts

fimmtudagur, 15. maí 2008

Röggi bróðir sendi mér þessa mynd í vikunni. Ég hló mig máttlausan þegar ég sá þetta.

Smellið á myndina til að stækka hana.

babydosdonts.jpeg

Skrifað í: Almennt | 1 Athugasemd »

Nýjar myndir af skvísunni

fimmtudagur, 15. maí 2008

Við settum inn nýjar myndir á krílis-síðunni í vikunni. Endilega kíkið á þær.

Með sólgleraugu

Skrifað í: Daglegt líf | Engar athugsemdir »

Útskrift

miðvikudagur, 14. maí 2008

ha ha ha … rakst fyrir algjöra tilviljun á þessa mynd. Hafði aldrei séð hana áður.

Þetta er sem sagt mynd sem tekin var af öllum útskriftarhópnum í HR í Janúar 2006.

Getið þið fundið mig á myndinni?

Útskrift

Skrifað í: Daglegt líf | 15 Athugasemdir »

Var Adolf Hitler meira gæðablóð en ég?

miðvikudagur, 14. maí 2008

Adolf HitlerStór hluti af starfi mínu snýst um auglýsingagerð og allt sem því fylgir, þ.a.m. kaup á auglýsingaplássum í fjölmiðlum. Í gær kom til mín mjög svo undarlegur maður sem ætlaði að selja mér auglýsingapláss í bækling sem ég hef einu sinni áður keypt pláss í. Síðast þegar ég keypti plássið var ég mjög efins um að þetta væru góð kaup og ákvað í kjölfarið að kaupa þetta pláss ekki aftur. Þegar ég sagði síðan þessum ágæta manni að ég hefði ekki í hyggju að kaupa þetta pláss aftur brást hann heldur illa við og fór að þusa um að ég væri sá fyrsti af öllum þeim sem hafa verið að kaupa pláss í þessum bæklingi til þess að bakka út úr honum. Ég svarað honum á mjög svo snyrtilegan máta að þetta væri einfaldlega ekki miðill sem hentaði fyrirtækinu og því vildi ég ekki kaupa þetta pláss aftur. Enn fór maðurinn að tuða og endaði á því að segja við mig að ég ætti að hafa í huga að jafnvel Adolf Hitler hefði staðið við samninga sem hann hefði skrifaði undir við Sovétríkin. Það undarlega við þessa athugasemd mannsins var það að ég hafði aldrei skrifað undir samning við manninn og því var þessi athugasemd algjörlega út úr kú. Mér þótti þetta nú bara hálf fyndið og sagði pent við hann að svona væri þetta bara, ég hefði ekki áhuga. Á endanum áttaði maðurinn sig á því að ég hafði ekki áhuga á auglýsingu og ætlaði að ganga í burtu. Áður en hann gerði það gat hann hins vegar ekki stillt sig um að nefna enn einu sinni við mig að Adolf Hitler hefði staðið við samninga sína.

Það er því ljóst á þessum athugasemdum mannsins að Adolf Hitler er meira gæðablóð en ég þar sem hann stóð við gerða samninga. :-|

Þessu starfi sem ég sinni fylgja mörg símtöl þar sem fjölmiðlar eru að reyna að selja mér auglýsingapláss í blöðunum sínum. Það er alveg merkilegt hvað mikill meirihluti af þessum einstaklingum sem eru að selja þessar auglýsingar skortir alla söluhæfileika. Ég hef meira að segja lent í því að þurfa að halda uppi samræðum við einstakling sem hefur verið að selja mér auglýsingu. Ég ætla að vona að viðkomandi hafi ekki verið á söluprósentum. Það er hins vegar nokkuð ljóst að mikil starfsmannavelta fylgir svona störfum og því kannski eðlilegt að fólk sé ekki búið að þjálfa upp sölutækni.

Það eina sem ég bíð eftir er að sölumaður frá einhverjum fjölmiðli hringi í mig og tali pólsku!

Skrifað í: Daglegt líf | 1 Athugasemd »

« Previous Entries