Apple
Enn og aftur sýna þessir gaurar að þeir eru einfaldlega bestir í bransanum.
Skrifað í:
Almennt |
Engar athugsemdir »
í auðninni.
Enn og aftur sýna þessir gaurar að þeir eru einfaldlega bestir í bransanum.
Skrifað í:
Almennt |
Engar athugsemdir »
Ég var að henda inn nýjum myndum af litla grallaranum mínum. Endilega kíkið á þær.

Skrifað í:
Daglegt líf |
1 Athugasemd »
Hversu magnað er það að geta bara verið á launum við það að rölta með barnakerruna í góða veðrinu?
Skrifað í:
Daglegt líf |
3 Athugasemdir »
Fyrir algjör tilviljun rakst ég á þessa 10 mín. heimildarmynd um ljósmyndarann Ragnar Axelsson (RAX) sem sonur hans skilaði inn sem lokaverkefni í Kvikmyndaskóla Íslands. Ég verð að segja að þetta er nokkuð vel gert hjá stráknum, a.m.k. var ég með fulla athygli í þessar 10 mín. Endilega kíkið á þetta ef þið hafið tíma.
Skrifað í:
Almennt, Ljósmyndun |
Engar athugsemdir »
Ákvað að gera smá prufu á myndvinnslu í nýju iMac vélinni. Merkilegt en satt var fljótlegra að vinna myndirnar í nýju vélinni þrátt fyrir það að gamla vélin hafi átt að vera öflugri skv. pappírum.
Myndirnar setti ég inn á www.andrimar.com. Þið getið kíkt á þær þar en þær eru einnig meðfylgjandi í þessu pósti.
Skrifað í:
Almennt |
2 Athugasemdir »
Jæja, ekki grunaði mig þegar ég skrifaði þessa færslu að ég myndi enda með nýja tölvu á haustmánuðum. Mér tókst að fjármagna nýja tölvu með því einu að selja gömlu vélina og skipta þannig, nokkurn vegin, á sléttu. Nokkuð gott .. uhh.
Ég verð að segja að við fyrstu skoðun lítur nýja vélin alveg rosalega vel út og vá hvað hlutirnir eru einfaldir. Þetta er alveg magnað.
Meira síðar.

Skrifað í:
Daglegt líf |
5 Athugasemdir »
Ég hef ákveðið að setja bílinn minn á sölu þrátt fyrir það að ég hafi engan áhuga á að selja hann. Ég einfaldlega verð að gera það þar sem ég er að reyna að koma mér í nýtt húsnæði og við það aukast útgjöldin. Þá er líklega skynsamlegra að eiga skuldlausan bíl. Ef þið hafið áhuga á bílnum getið þið skoðað hann á Litlu bílasölunni. Sjá hér. Stærri myndir má sjá hér.

Skrifað í:
Daglegt líf |
10 Athugasemdir »
Ég verð því miður að játa það að ég mun ekki taka þátt í 10 km. maraþoninu á laugardaginn þar næsta eins og ég var búinn að plana.
Ástæðan er í raun tvíþætt. Í júní fékk ég alveg heiftarlega í hægra hnéð, líklega vegna álags, og hef ekki alveg náð mér að fullu eftir það. Hin ástæðan er síðan sú að eftir heilmikla smíða-, pípara-, málara- og samsetningavinnu er ég enn verri í hnjánum. Ég er það slæmur að ég á í erfiðleikum með að fara niður á hnén án þess að finna til. Í morgun vaknaði ég meira að segja með verki um allan líkama. Reyndar gæti ég líka talið upp þriðju ástæðuna, bólgu í hægri öxl, en það er reyndar eitthvað sem á ekki að koma í veg fyrir að maður hlaupi.
Þar hafið þið það, ég er aumingi og gamalmenni … he, he, he. c”)
Skrifað í:
Daglegt líf |
2 Athugasemdir »
Hér er maður með viti.
Skrifað í:
Almennt |
3 Athugasemdir »
Prinsessan er 11 vikna í dag og því alveg við hæfi að skella inn einni mynd sem ég tók í gær. Ég er alveg ferlega ánægður með myndirnar sem ég tók. Prinsessan var alveg ótrúlega dugleg að halda haus á teppinu sínu og horfði meira að segja beint í linsuna hjá mér. Litla er farin að babbla á fullu og glottir út í eitt, alveg ferlega skemmtilegt. Annars gengur allt alveg rosalega vel með hana.
Af æfingum fyrir maraþon er það að frétta að ég er rétt að byrja að hlaupa aftur eftir all svakalegt kvef. Var eins og aumingi í rúma viku með hor í nös og gat ekkert gert. Ég var hins vegar að átta mig á því að það er ekki nema rúmur 2 1/2 mánuður í hlaupið og því er eins gott að fara að taka æfingarnar með trukki. Fyrir kvefið var ég að taka 10 km. á léttu skokki á 60 min. Ég þarf því að skera þennan tíma niður um 15 min. Verð að segja að ég er farinn að kvíða örlítið fyrir þetta. Meira um þetta síðar.
Skrifað í:
Almennt |
4 Athugasemdir »