Um Andra Má
Maður heitir Andri Már Helgason og er fæddur í Reykjavík.
Fljótlega eftir fæðingu fengu foreldrarnir þá flugu í hausinn að það væri sniðugt að fara í framhaldsnám í Noregi, nánar tiltekið Oslo. Fyrstu sex ár ævinnar fékk maður því íslenskt/norskt uppeldi en á síðari árum hefur norski hlutinn svo gott sem horfið.
Þegar heim var komið var flutt í Árbæinn. Á þeim sex árum sem við bjuggum þar gerðist afskaplega lítið. Þetta er sá tími sem maður lærði að skrifa og glamra á gítar.
Síðustu ár hefur maður verið staddur í bæjarfélagi sjálfstæðismanna, Garðabæ. Eins og vera ber fór maður í gegnum grunnskólana á viðkomandi stað en þegar koma að framhaldsskóla var ákveðið að fara í Versló á stærðfræðibraut. Þó svo að maður hafi endað í skóla sem eru þekktur fyrir að vera æfingabúðir sjálfstæðismanna komst ég klaklaust í gegnum hann án þess að verða flokksbundinn .. merkilegt nokk.
Í framhaldi af Versló, reyndar með smá hléi, var síðan ákveðið að skella sér í frekara viðskiptanám og því var haldið í Tækniskóla Íslands sem síðar varð Tækniháskóli Íslands og við útskrift Háskólinn í Reykjavík. Ég hef því afrekað að stunda nám í þremur háskólum án þess nokkurn tíman að skipta sjálfviljugur um skóla.
Námið sem ég fór í gegnum er byggt á markaðsfræði og því mætti segja að ég sé „markaðsfræðingur“.
Meðfram námi í háskólanum vann ég hjá flutningsmiðluninni Jónar Transport. Það má með segja að ég þekki innviði fyrirtækisins vel þar sem ég hef komið nálægt flestum starfssviðum fyrirtækisins. Eftir útskriftina tók ég síðan við stöðu markaðsstjóra fyrirtækisins.
Gestir þessa vefs geta eflaust getið sér til um að ég er áhugamaður um ljósmyndun og hef verið það síðustu þrjú til fjögur árin. Á þessum tíma hef ég meðal annars setið í stjórn Fókuss, félag áhugaljósmyndara, sem og starfað sem vefstjóri félagsins.
Þeir sem vilja ná tali af mér geta annað hvort sent mér tölvupóst á andrimar (hjá) andrimar (punktur) com eða þá bjallað á mig í síma 858-8009.
Portrait mynd af mér á þessari síðu eru teknar af Arnþóri Birkissyni.
Skrifað í:
Óflokkað |