Apple
Enn og aftur sýna þessir gaurar að þeir eru einfaldlega bestir í bransanum.
Skrifað í:
Almennt |
Engar athugsemdir »
í auðninni.
Enn og aftur sýna þessir gaurar að þeir eru einfaldlega bestir í bransanum.
Skrifað í:
Almennt |
Engar athugsemdir »
Fyrir algjör tilviljun rakst ég á þessa 10 mín. heimildarmynd um ljósmyndarann Ragnar Axelsson (RAX) sem sonur hans skilaði inn sem lokaverkefni í Kvikmyndaskóla Íslands. Ég verð að segja að þetta er nokkuð vel gert hjá stráknum, a.m.k. var ég með fulla athygli í þessar 10 mín. Endilega kíkið á þetta ef þið hafið tíma.
Skrifað í:
Almennt, Ljósmyndun |
Engar athugsemdir »
Ákvað að gera smá prufu á myndvinnslu í nýju iMac vélinni. Merkilegt en satt var fljótlegra að vinna myndirnar í nýju vélinni þrátt fyrir það að gamla vélin hafi átt að vera öflugri skv. pappírum.
Myndirnar setti ég inn á www.andrimar.com. Þið getið kíkt á þær þar en þær eru einnig meðfylgjandi í þessu pósti.
Skrifað í:
Almennt |
2 Athugasemdir »
Hér er maður með viti.
Skrifað í:
Almennt |
3 Athugasemdir »
Prinsessan er 11 vikna í dag og því alveg við hæfi að skella inn einni mynd sem ég tók í gær. Ég er alveg ferlega ánægður með myndirnar sem ég tók. Prinsessan var alveg ótrúlega dugleg að halda haus á teppinu sínu og horfði meira að segja beint í linsuna hjá mér. Litla er farin að babbla á fullu og glottir út í eitt, alveg ferlega skemmtilegt. Annars gengur allt alveg rosalega vel með hana.
Af æfingum fyrir maraþon er það að frétta að ég er rétt að byrja að hlaupa aftur eftir all svakalegt kvef. Var eins og aumingi í rúma viku með hor í nös og gat ekkert gert. Ég var hins vegar að átta mig á því að það er ekki nema rúmur 2 1/2 mánuður í hlaupið og því er eins gott að fara að taka æfingarnar með trukki. Fyrir kvefið var ég að taka 10 km. á léttu skokki á 60 min. Ég þarf því að skera þennan tíma niður um 15 min. Verð að segja að ég er farinn að kvíða örlítið fyrir þetta. Meira um þetta síðar.
Skrifað í:
Almennt |
4 Athugasemdir »
Röggi bróðir sendi mér þessa mynd í vikunni. Ég hló mig máttlausan þegar ég sá þetta.
Smellið á myndina til að stækka hana.
Skrifað í:
Almennt |
1 Athugasemd »
Ég þurfti að gera smá breytingu á æfingaprógraminu í gær. Þar til í gær hafði ég nefnilega notað púlsmæli sem bróðir minn á en það var eiginlega alveg ljóst að ég gat ekki verið með þetta tæki í láni þar til í haust. Ég ákvað því að fjárfesta í svona æfingatæki þar sem ég hafði tök á því að fá góðan afslátt hjá einum innflutningsaðila hér í bæ. Reyndar er ég mjög feginn að ég gerði þetta þar sem þetta nýja tæki býður upp á mun betra æfingaprógram en það gamla og þar af leiðandi fær maður vonandi mun meira út úr hverri æfingu.
Með því að skipta um tæki þurfti ég einnig að taka niður þessa tengla á æfingarnar, sem voru á vinstri hliðinni. Þið getið því ekki fylgst með árangrinum hjá mér eins og ég var búinn að lofa. Ég skal samt setja reglulega inn pistla um árangurinn hjá mér. Ég lofa! c”)
Skrifað í:
Almennt |
Engar athugsemdir »
Ég verð reglulega “veikur”, þó ekki í þeim skilningi sem þið haldið. Ég verð nefnilega sjaldan veikur en oft “veikur”. Í síðustu viku varð ég t.d. veikur þar sem ég fékk einhvern skít í hálsinn og hóstaði því í tíma og ótíma. Sem betur er ég búinn að ná þessum skít úr hálsinum á mér en í fyrrakvöld tók hins vegar ekkert betra við, ég varð nefnilega “veikur”. Hver er ástæðan? Jú, ég álpaðist til þess að fara inn á vefsíðu Apple. Mig langar nefnilega alveg óstjórnlega mikið til þess að koma mér úr þessu PC umhverfi yfir í makkann. Ég er stílhreinn maður að eðlisfari og því á þetta umhverfi og “look” vel við mig, fyrir utan það hversu öflugur makkinn er. Mér finnst t.d. þessi mynd hér lýsa því vel hversu stílhreinn makkinn er. Það fyndna við þessa mynd er að ég er akkúrat með Dell XPS vél og því er umfangið á tölvunni minni álíka og á þessari mynd, reyndar er þessi vél aðeins minni en mín. Eini ókosturinn við þetta allt saman er að þetta kostar allt peninga og það er eitthvað sem maður á ekki alveg á lausu.
Það er því spurning hvort maður komi ekki bara af stað einhverju söfnunarátaki og óski eftir frjálsum framlögum. Haldið þið að það muni ekki virka .. he he he
Skrifað í:
Almennt |
2 Athugasemdir »
Ef þetta fær mann ekki til þess að brosa örlítið, svona í byrjun vikunnar, þá veit ég ekki hvað þarf til.
Skrifað í:
Almennt |
Engar athugsemdir »
Hafið þið ekki lent í því að fá sendan tölvupóst með pælingum sem eru alveg brilliant en um leið og þið lesið póstinn veltið þið því fyrir ykkur hvort fólk hafi ekkert betra við tímann sinn að gera en að semja svona rugl? Ég fékk einmitt svona póst í dag. Má til með að sýna ykkur þetta.
Þessi póstur er smá innlegg í kúkaumræðuna.
|
Draugadrjóli: |
Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir. |
|
Hreinn skítur: |
Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum. |
|
Eltikúkur: |
Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira. |
|
Sprengja-æð-í-enninu hnulli: |
Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag. |
|
Dauðadrumbur: |
Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti |
|
Loftpressukúkur: |
Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa. |
|
Þynnkuskita: |
Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni |
|
Maískúkur: |
Skýrir sig sjálfur. |
|
Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: |
Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar. |
|
Mænustunguskítur: |
Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum. |
|
Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): |
Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni. |
|
Fljótandi drulla: |
Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og jafnvel útá rasskinnar í leiðinni . Hér kæmi þvottapoki sér betur en skeinipappír. |
|
Háklassakúkur: |
Kúkur sem lyktar ekki. |
|
Óvæntur kúkur: |
Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en… úps, sparð. (þessa gerð vil ég kalla “frúk (þú ætlar að FReta en það kemur óvart kÚKur) |
|
Slórskítur: |
Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel. |
|
Atómsprengja: |
Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir. |
|
Skopparakúkur: |
Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kosturinn er að þarf lítið að skeina) |
|
Mikilmennskukúkur: |
þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð. |
|
Íþróttaálfurinn: |
kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina. |
|
Klippikúkur: |
sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa… |
Skrifað í:
Almennt |
1 Athugasemd »